top of page

Stuttmyndin Bókin sýnd í Skriðu á Skjaldborg

Stuttmyndin Bókin verður sýnd í Skriðu á Skjaldborg - Hátíð íslenskra heimildamynda...

Stuttmyndin Bókin verður sýnd í Skriðu á Skjaldborg - Hátíð íslenskra heimildamynda.

Opnunartímar:

föstudaginn 17. maí frá kl. 22:20-00

laugardag 18. maí frá kl. 13-16

sunnudag 19. maí frá kl. 13-16


Bókin


Í elstu starfandi fornbókabúð landsins starfa bóksalarnir Ari Gísli og Eiríkur. Þegar þeir byrjuðu ungir menn í bransanum á níunda áratugnum voru 14 fornbókaverslanir í miðborg Reykjavíkur. Árið 2024 stendur Bókin ein eftir. Í myndinni fylgjumst við með daglegu lífi í tímahylkinu á horni Hverfisgötu og Klapparstígs.

Leikstjórn: Flóki Larsen


Öll velkomin! Heitt á könnunni.

bottom of page