Skriðuskáldin

Auður Þórhallsdóttir
Auður Þórhallsdóttir (f. 1974) lærði ljósmyndun við GRIS-ART í Barcelona og hefur tekið námskeið í myndskreytingu barnabóka frá Anglia Ruskin University Cambridge. Hún er sjálfstætt starfandi rithöfundur og myndlistarmaður.
-Með vindinum liggur leiðin heim (Skriða 2022)
-Miðbæjarrottan: þetta kemur allt með kalda vatninu (Skriða 2022)
-Miðbæjarrottan: borgarsaga (Skriða 2020)
-Tönnin hans Luca/El diente de Luca, ásamt Pilar Concheiro (2016)
-Sumar með Salla (2013)
-Litla gula hænan: síðasta kvöldmáltíðin, ásamt Björgvini Ívar (Nykur 1997)

Birta Ósmann Þórhallsdóttir
Birta Ósmann Þórhallsdóttir (1989) er með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og MA gráðu í ritlist við Háskóla Íslands. Hún hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2016. Hún er sjálfstætt starfandi rithöfundur, þýðandi og myndlistamður.
-Spádómur fúleggsins, ljóðabók (Skriða, 2022)
-Þýðing úr spænku: Snyrtistofan eftir Mario Bellatin (Skriða 2021)
-Einsamræður, örsögur (Skriða 2019)

Freyja Eilíf Draumland
Freyja Eilíf Draumland (1986) er með
BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og nam einnig rússnesk fræði við Háskóla Íslands á árunum 2007-2012. Hún vinnur við myndlist og rak Skynlistasafnið í miðbæ Reykjavíkur.
-Þýðing úr rússnesku: Mannveran eftir Maxím Gorkí (Skriða 2019)

Sigurbjörg Friðriksdóttir
Sigurbjörg Friðriksdóttir (1959) lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum á Norðurlandi vestra, Tannfræðiprófi frá Háskólanum í Oslo og Uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands. Sigurbjörg hefur lengst af starfað við kennslu og starfar nú í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit.
-Næturlýs, ljóðabók (Skriða, 2022)
-Vínbláar varir, ljóðabók (Skriða 2019)
-Gáttatif, ljóðabók (Meðgönguljóð, Partus 2016)

Þórður Skúlason
Þórður Skúlason (1943) starfaði samtals í tuttugu ár sem sveitarstjóri á Hvammstanga, var í hreppsnefnd Hvammstangahrepps og var síðan framkvæmdarstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
-Hús og híbýli á Hvammstanga: Húsaskrá
1898-1972 (Skriða 2021)
-Þýðing: Heimsins besti bær eftir Arto
Paasilinna (Skrudda 2013)

Þórhildur Ólafsdóttir
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir (1953) nam franskar bókmenntir og málvísindi við Háskólann í Orléans, Frakklandi og fékk doktorspróf þaðan árið 1982. Á níunda áratug síðustu aldar var hún lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands. Frá 1988 hefur hún búið í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún vann í 25 ár í ýmsum deildum Evrópuráðsins. Hún var m.a. stjórnandi skrifstofu jafnréttismála kvenna og karla (1993-2002). Frá 2003 vann hún við menntamálaskrifstofu Evrópuráðsins þar sem hún byggði upp sérstaka deild um mannréttinda- og lýðræðiskennslu. Síðustu árin í starfi sínu þar var hún yfirmaður menntamála og æskulýðsmála.
-Efndir, skáldasaga (Skriða 2021)
-Brot úr spegilflísum, ljóðabók (Skriða 2020)
-Þýðing úr tyrknesku: Memed mjói eftir Yasar Kemal (Mál og menning, 1985)